HARPA KÁRA

MENNTUN

Harpa Káradóttir hefur starfað sem förðunarfræðingur til 18 ára, hún lauk námi frá Make-Up Designory í Los Angeles með diplóma í kvikmynda- og sjónvarpsförðun.

REYNSLA

Fyrstu árin eftir útskrift starfaði Harpa hjá MAC og var m.a. meðlimur í MAC Nordic Event Team ásamt því að sinna hlutastarfi hjá RÚV í um nokkurra ára skeið. Síðar lá leiðin í freelance vinnu sem förðunarfræðingur fyrir auglýsingar, tískumyndatökur og sjónvarpsþætti þar sem Harpa m.a. hlaut Eddu tilnefningu fyrir störf sín.

ANDLIT

Árið 2016 varð Harpa metsölubókahöfundur förðunarbókarinnar Andlit ásamt því að taka við starfi förðunarritstjóra tíkutímaritsins Glamour.

"Ég stofnaði Make-Up Studio með það að markmiði að bjóða upp á framúrskarandi förðunarkennslu á ólíkum stigum fyrir alla hópa samfélagsins.

 Make-Up Studio stendur fyrir gæði, reynslu og fagleg vinnubrögð."

Harpa Káradóttir eigandi og stofnandi.

STOFNUN SKÓLANS

Harpa starfaði síðan sem skólastjóri við Mood Make- Up School sem hún síðar keypti og breytti áherslum er varðar förðunarnám á Íslandi og úr varð Make-Up Studio Hörpu Kára.

Frá árinu 2018 hefur Harpa að mestu leyti sinnt störfum sínum í Make-Up Studio og komið að uppbyggingu að framúrskarandi förðunarnámi með faglegum og heilbrigðum hætti þar sem hún styður undir starfsferil fyrrum nemenda sinna með því að veita þeim gott tengslanet við aðra geira er tengjast förðunarbransanum.

MEIRA UM SKÓLANN